Styrktst sjálf með því að hjálpa öðrum
Fréttablaðið
9. október 2013
Helga Hallbjörnsdóttir, formaður mannúðarsamtakanna Handarinnar, opnar heimili sitt fyrir þeim sem eru hjálparþurfi. Veit sjálf hvernig það er að þjást af kvíða, þunglyndi og örlyndi. Styrkir til samtakanna hafa verið skornir niður.
„Ég er sjálf með geðhvörf og veit hvernig þeim líður sem þjást af kvíða, þunglyndi eða örlyndi. Mér fannst þetta verðugt starf og ákvað að bjóða samtökunum aðstoð mína.“ Þetta segir Helga Hallbjörnsdóttir, formaður mannúðar- og mannræktarsamtakanna Handarinnar.
„Við styðjum þá sem til okkar leita og þurfa aðstoð við að feta skref til nýs lífs eftir ýmis áföll. Við förum einnig í heimsóknir til fólks, einkum aldraðra, og á sjúkrahús. Margir glíma við einsemd eða félagsfælni og við reynum að gera þeim lífið bærilegra. Yngri skjólstæðingar koma heim til okkar. Í sumum tilfellum leitar fólk sjálft til okkar en í öðrum er okkur bent á að viðkomandi þarfnist hjálpar eða félagsskapar,“ segir Helga.
Samtökin Höndin voru stofnuð árið 2005, að því er Helga greinir frá.
„Eyjólfur Magnússon Scheving, kennari og atferlisfræðingur, stofnaði Höndina ásamt nokkrum vinum sínum. Hann hafði verið á Reykjalundi og sá þar mann sem komst varla skrefið. Þessi maður þráði að komast í vinnu en taldi það vonlítið vegna heilsufars síns. Eyjólfur, sem er mikill mannvinur, gat útvegað honum starf. Þetta var upphafið að stofnun samtakanna þar sem nú eru á annað hundrað félagar.“
Helga segir aðeins einn starfsmann vera á launum hjá samtökunum. Aðrir séu sjálfboðaliðar. „Þetta er fjármagnað með styrkjum frá einstaklingum, ríki og borg en það hefur verið erfitt að fá styrki núna vegna niðurskurðar. Þetta er eiginlega á heljarþröm. Áður héldum við reglulega málþing um ýmis málefni en nú getum við bara haldið jólafund. Þá verða fyrirlestrar haldnir og boðið upp á piparkökur.“
Höndin heldur einu sinni í viku sjálfstyrkingarfundi í Áskirkju. „Þeir eru ekki bara fyrir þá sem líður illa af einhverjum ástæðum heldur einnig fyrir þá sem vilja bara styrkja sitt eigið sjálf, láta gott af sér leiða og hjálpa öðrum í vanda. Það er ekki nauðsynlegt að tjá sig á fundunum heldur velur hver og einn hvort hann vill taka þátt í umræðum eða ekki. Það þarf ekki að greiða fyrir þátttöku. Eina skilyrðið er að menn haldi trúnað.“
Sjálf kveðst Helga hafa styrkst af starfinu fyrir Höndina, sem fékk samfélagsverðlaun Fréttablaðsins árið 2009.


Fyrirtæki ársins 2012


Fyrirtæki ársins 2009
Fyrirtæki ársins 2011
Fyrirtæki ársins 2010


Fyrirtæki ársins 2014
Fyrirtæki ársins 2013


Starf Handarinnar má styrkja með því að leggja inn á reikninginn:
Banki: 0114 – 26 – 020106
Kennitala: 520106-0570
Við óskum eftir sjálf-boðaliðum í gefandi starf með okkur. Viðkomandi þyrfti að hafa 3-4 klst í mánuði til að aðstoða og veita félagsskap, öldruðum – öryrkjum og einstaklingum sem eru að fást við sorg eða erfiðleika.
Endilega hafið samband.


Fyrirtæki ársins 2015
