|
Jólafundur Handarinnar tókst vel að vanda. Kvennakórinn Glæðurnar sungu jólalög og hituðu upp fyrir ræðumenn kvöldsins. Sigmundur Ernir las uppúr nýrri bók sinni, Magnea. Án efa magnþrungin saga þar á ferð. Ása Björk Ólafsdóttir, héraðsprestur ræddi um þakklætið. Svo las Þráinn Bertelsson úr bók sinni, Ég ef mig skyldi kalla. Að lokum flutti séra Bjarni Karlsson hugvekju.
Höndin veitti einnig viðurkenningar fyrir störf í þágu mannúðar. Að þessu sinni var viðurkenningin veitt til Halldórs Kára, frá Heimilistækjum og Höllu Vilborgar Jónsdóttur, frá Fréttablaðinu.
Fundinum stjórnaði Ellert B. Schram alþingismaður.
Höndin óskar öllum, nær og fjær, Gleðilegra Jóla
|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 20 janúar 2009 )
|