Sjálfboðaliðar ?

Við óskum eftir sjálf-
boðaliðum í gefandi starf með okkur. Viðkomandi þyrfti að hafa 3-4 klst í mánuði til að aðstoða og veita félagsskap, öldruðum - öryrkjum og einstaklingum sem eru að fást við sorg eða erfiðleika. 
Endilega hafið samband.
globe.jpg

Fyrirtæki Ársins.

hscopy1

 

Höndin vill beina viðskiptum til þess.

Vel heppnað málþing Print Senda

Málþing Handarinnar í Áskirkju 12. nóvember sl. var afar vel heppnað. Yfirskrift þingsins var “Af erfiðleikunum vex maður” og þar hafði framsögu Friðrik Pálsson hóteleigandi.

Þá var listamaðurinn Hörður Torfason með stutt ávarp og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir stýrði fundinum af mikilli röggsemi og lagni.

  fririk_plsson

Friðrik ræddi um áfallið sem hann varð fyrir þegar hann missti eiginkonu sína, Ólöfu Pétursdóttur, en Ólöf féll af hestbaki í september 2006 og lamaðist frá hálsi. 

Hún lést af áverkum sínum 20. mars síðastliðinn, eftir hetjulega baráttu.

Friðrik sagði fundargestum af einlægni frá tilfinningum sínum og viðbrögðum við slysinu, og því sem á eftir fór.

Hann dró ekki úr áfallinu, en sló einnig á létta strengi og undirstrikaði hversu gleðin væri mikilvæg í öllum aðstæðum.

Ólöf sjálf hefði verið mikill gleðigjafi í veikindum sínum og fólk sóst eftir að heimsækja hana og alltaf farið ríkari af þeim fundi.

Kraftur og bjartsýni Friðriks smitaði út frá sér og gerði fundarmönnum gott.

 



Hörður Torfason stiklaði á stóru um æviferil sinn sem hefur ekki alltaf verið auðveldur en undirstrikaði eins og Friðrik að gleðin væri sterkasta aflið til að vinna bug á erfiðleikum.

 

 


Gestir fundarins báru fram fjölda spurninga og efnahagsástandið og reiðin í þjóðfélaginu voru meðal umræðuefna.

Allir voru sammála um að reiði væri réttmæt og eðlileg tilfinning þegar áföll dynja yfir, en mikilvægt væri að festast ekki í reiðinni.

Hana þyrfti hinsvegar að virkja til góðra verka.  

sungi_saman__lokin 
Og til að undirstrika gleðina enduðu gestir fundinn með samsöng undir stjórn Harðar, sammála um að söngurinn göfgaði og glæddi og nú þegar syrti í álinn væri mikilvægt að ástunda allt sem gerði sálinni gott.  

 

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 20 janúar 2009 )
 
< Fyrri   Næst >