Sjálfboðaliðar ?
Við óskum eftir sjálf-
boðaliðum í gefandi starf með okkur. Viðkomandi þyrfti að hafa 3-4 klst í mánuði til að aðstoða og veita félagsskap, öldruðum - öryrkjum og einstaklingum sem eru að fást við sorg eða erfiðleika. Endilega hafið samband.
Fyrirtæki Ársins.
Höndin vill beina viðskiptum til þess.
|
|
Eldri málþing |
|
|
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 17. apríl var haldið málþing í Áskirkju undir yfirskriftinni Húmar að kveldi, lifum lífinu lifandi.
Þórir Guðbergsson fór með fundarstjórn en framsögumenn voru Guðrún Níelsen, Guðrún Jónsdóttir í Gerðubergi og Helgi Seljan, sem fór með pistil og gamanmál.
Sigurður Jónsson, prestur í Áskirkju, flutti hugleiðingu, en Vinanbandið gladdi fundargesti með skemmtilegri tónlist.
Skemmtilegt Málþing
Rúmlega hundrað manns sóttu síðasta málþing handarinnar, Lífsgleði njóttu _ lífið er dásamlegt, sem haldið var í Áskirkju 6. mars síðastliðinn. Málþingið var sérlega vel heppnað og framsögumennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, og Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur, fóru á kostum ásamt fundarstjóra, Páli Eiríkssyni geðlækni.
Margrét Frímannsdóttir, alþingismaður, sem einnig ætlaði að hafa framsögu á fundinum, komst ekki vegna veikinda og var sárt saknað.
Líflegar umræður voru úr sal og í lokin stóðu fundarmenn upp og sungu saman “Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur”.
Það var mál manna að fundurinn hefði verið lifandi og skemmtilegur og allir fóru heim léttari í skapi að fundi loknum.
Vel heppnað málþing 6. febrúar
Höndin hélt málþing undir yfirskriftinni Það er engin skömm að þunglyndi 6. febrúar síðastliðinn. Fundurinn var haldinn í Áskirkju og var fullt út úr dyrum. 170 manns mættu á fundinn sem var afar vel heppnaður. Framsögumen voru Arna Scram, formaður Blaðamannafélags Íslands, og Salbjörg Bjarndóttir, verkefnisstjóri Þjóðar gegn þunglyndi.
Margir tóku til máls, bæði þeir sem hafa persónulega reynslu af þunglyndi og einnig aðstandendur.. Það kom skýrt fram á fundinum að bæði sjúklingar og aðstandendur þurfa stuðning því oft mæta fordómar og skilningsleysi þessu fólki. Öllum bar saman um að samtöl, hlýja og virðing væri mikilvægustu þættirnir í meðferð á sjúkdómnum oa því miður væru fordómar ekki minnstir í heilbrigðisstéttum. Fölmargir félagar skráðu sig í Höndina og munu taka þátt í stuðningshópum Handarinnar í framtíðinni. Höndin fagnar þessum nýju liðsmönnum og hlakkar til að styðja þá og njóta reynslu þeirra í starfinu.

7. Nóvember:
JÁKVÆTT SJÁLFSTRAUST / LEIÐ TIL BETRA LÍFS -
Frábærir framsögumenn, Magnús Scheving, forstjóri Latabæjar & Svafa Grönfeldt aðstoðarfjorstjóri Actavis. . Opnar umræður
3. Október:
Fræðslufundur - Málþing
ERU FÍKNIEFNI EINKAMÁL? HVAÐ ER TIL RÁÐA?
Njörður P. Njarðvík flytur pistil og Ólafur Guðmundsson fulltrúi
frá fíkniefnadeild lögreglunnar ræðir málin ásamt Mumma í Mótorsmiðjunni.
Séra Karl V. Matthísasson fundarstjóri. Opnar umræður.
Fundarstaður : Áskirkja, neðri sal.
Fundartími : 3. Október, klukkan 20:30
|
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 07 febrúar 2008 )
|
|
|