Í kvöld heldur Höndin málþing í neðri sal Áskirkju undir yfirskriftinni Lífið er dásamlegt – lífsgleði njóttu.
Framsögumenn eru Margrét Frímannsdóttir, alþingismaður, Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, og Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur. Höndin, sem eru alhliða mannúðar- og mannræktarsamtök, leitast við að vera vettvangur fólks til sjálfstyrkingar og samhjálpar. Markmiðið er að hjálpa fólki sem er að feta sín fyrstu skref til nýs lífs eftir ýmis áföll og vera farvegur fólks í átt til þátttöku í samfélaginu, bæði hvað varðar félagslega færni og atvinnuþátttöku.
Kjörorð Handarinnar er: Leið til sjálfshjálpar, allir með.
Málþingið í kvöld hefst klukkan 20.30. Kaffiveitingar, umræður og allir velkomnir.