MANNÚÐAR- og mannræktarsamtökin Höndin efna til fræðslufundar undir yfirskriftinni "Kleppur er víða" í Áskirkju, neðri sal, á þriðjudaginn klukkan 20.30. Tilefnið er hundrað ára afmæli Kleppsspítala á þessu ári. Frummælendur eru Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur í stefnumótun á geðheilbrigðissviði. Helga Hallbjörnsdóttir setur fundinn en fundarstjóri er Áslaug Ragnars rithöfundur. Kaffi og umræður að erindum loknum.
Höndin er alhliða mannúðar- og mannræktarsamtök. Þau leitast við að vera vettvangur fólks til sjálfstyrkingar og samhjálpar, aðstoða, liðsinna og styðja þá sem til þeirra leita. Þá hjálpa þau fólki sem er að feta sín fyrstu skref til nýs lífs eftir ýmis áföll og eru farvegur fólks í átt til þátttöku í samfélaginu. Kjörorð Handarinnar eru: Leið til sjálfshjálpar, allir með.