Sjálfboðaliðar ?

Við óskum eftir sjálf-
boðaliðum í gefandi starf með okkur. Viðkomandi þyrfti að hafa 3-4 klst í mánuði til að aðstoða og veita félagsskap, öldruðum - öryrkjum og einstaklingum sem eru að fást við sorg eða erfiðleika. 
Endilega hafið samband.
globe.jpg

Fyrirtæki Ársins.

hscopy1

 

Höndin vill beina viðskiptum til þess.

Fjölmennt málþing Print Senda

 

Málþing Handarinnar í Áskirkju þriðjudagskvöldið 17. apríl var einstaklega vel heppnað. Þar var fríoðleikur í bland við skemmtun og þeir um það bil 150 sem mættu í kirkjuna voru afar ánægðir með kvöldið. Vinabandið lék létta tónlist fyrir fundinn og kom fundargestum í hátíðarskap strax í upphafi. Þórir Guðbergsson stýrði fundinum af röggsemi en hann hefur sem kunngugt er sinnt málefnum aldraðra í áratugi sem kennari og félagsráðgjafi. Guðrún Jónsdóttir hjá félagsstarfi Gerðubergs talaði um starfið í Gerðubergi, sem hefur vaxið og dafnað á undanförnum áratugum, en hún lagði áherslu á að stöðugleiki í starfsmannahaldi væri mikilvægur. Áður en kirkjugestir fengu hlé til að fá sér kaffi og kökur kom Helgi Seljan, fyrrverandi þingmaður, í ræðustól og fór á kostum. Hann fór með ljóð og gamanmál og nokkrir gesta sáu sig knúna til að bæta við nokkrum bröndurum áður en kaffihléð hófst. Eftir kaffið hélt hin síunga Guðrún Nielsen íþróttakennari fyrirlestur um hvernig best væri að búa sig undir efri árin með líkamsrækt og var sjálf lifandi dæmi um hversu mikilvæg hreyfing er fyrir skrokkinn. Hún hoppaði um eins og táningur þrátt fyrir að vera orðin 84 ára gömul, þráðbein í baki og kvik í hreyfingum. Hún lagði sérstaka áherslu á umhirðu fóta og hvernig öll hreyfing er af hinu góða. Fulltrúar nokkurra stjórnmálaflokka mættu og Ásta R. ávarpaði fundinn fyrir hönd Samfylkingar.   Sigurður Jónsson var með fallega hugleiðingu í lok fundar, en eftir hugleiðinguna steig Vinabandið aftur á svið og tók nokkur lög. Gestir málþingsins tóku vel undir sönginn og allir fóru glaðir í bragði og vongóðir út í vorkvöldið þegar málþinginu lauk.

P4170291 
 Stigin var léttur dans
 P4170350
 P4170348
 P4170317
 P4170310
 P4170301
 
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 07 febrúar 2008 )
 
< Fyrri   Næst >