Sjálfboðaliðar ?

Við óskum eftir sjálf-
boðaliðum í gefandi starf með okkur. Viðkomandi þyrfti að hafa 3-4 klst í mánuði til að aðstoða og veita félagsskap, öldruðum - öryrkjum og einstaklingum sem eru að fást við sorg eða erfiðleika. 
Endilega hafið samband.
globe.jpg

Fyrirtæki Ársins.

hscopy1

 

Höndin vill beina viðskiptum til þess.

Ferðabæn Print Senda

Í lok frábærs fundar hjá “Höndinni” langaði mig til þess að gefa fundarmönnum hluta í gjöf, sem ég fékk frá írskri konu, sem bjó á Norðurlöndum.
Henni hafði verið vísað til mín vegna kvíða og þunglyndis. Í ljós kom að hún og bróðir hennar, þá 8-10 ára gömul, höfðu orðið vitni að morði föður þeirra á móðurinni í svefnherbergi þeirra hjóna.
Hún kom til mín í viðtöl einu sinni í viku í nokkra mánuði og ók þá nær 100 km. hvora leið.
Í lokaviðtali okkar sagðist hún vilja færa mér þessa írsku ferðabæn sem þökk fyrir hjálpina. Síðan fluttist hún á brott.


Megi leiðin ávallt vera þér fær
Megir þú alltaf hafa meðbyr
Megi sólin skína á andlit þitt og
regnið falla milt á akra þína
og uns við hittumst á ný----
megi Guð halda þér varlega í hendi sinni
lausleg þýð. Páll Eiríksson

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 06 febrúar 2007 )