Sjálfboðaliðar ?
Við óskum eftir sjálf-
boðaliðum í gefandi starf með okkur. Viðkomandi þyrfti að hafa 3-4 klst í mánuði til að aðstoða og veita félagsskap, öldruðum - öryrkjum og einstaklingum sem eru að fást við sorg eða erfiðleika. Endilega hafið samband.
Fyrirtæki Ársins.
Höndin vill beina viðskiptum til þess.
|
|
Grein úr Morgunblaðinu 24.sept 2006 |
|
|
Morgunblaðsgrein : Sunnudaginn 24. september, 2006 - Innlent - greinar
Ekki nóg að greina vandann - það þarf að leysa hann líka
Drjúgum hluta barnæskunnar er varið í skólanum og Ingibjörg Rafnar,
umboðsmaður barna, og Eyjólfur Magnússon Scheving, grunnskólakennari,
eru sammála um að hlutverk skólans í uppeldi barna hafi sjaldan verið
stærra.
Drjúgum hluta barnæskunnar er varið í skólanum og Ingibjörg Rafnar,
umboðsmaður barna, og Eyjólfur Magnússon Scheving, grunnskólakennari, eru
sammála um að hlutverk skólans í uppeldi barna hafi sjaldan verið stærra.
En eru íslenskir skólar starfi sínu vaxnir?
Ingibjörg upplýsir að hún hafi bent á það í sambandi við endurskoðun
grunnskólalaganna sem nú er nýhafin að það sé afar mikilvægt að
grunnskólalögin skilgreini betur ábyrgð hvers aðila, þ.e. sveitarfélagsins
sem rekur skólann, skólans sjálfs, foreldranna og nemendanna.
"Samstarf foreldra og skóla hefur aukist mikið á liðnum misserum en eigi að
síður er hægt að gera betur í því efni. Það er til dæmis áberandi að eina
skyldan sem grunnskólalögin setja á herðar foreldrum er sú að þeir innriti
börnin sín í skóla og sjái til þess að þau sæki skólann. Um margt er
auðvitað um sameiginlegt hlutverk foreldra og skóla að ræða en annað
stendur bara upp á foreldrana eins og t.d. að sjá til þess að börnin séu
móttækileg fyrir fræðslunni, að þau mæti í skólann, að þau mæti á réttum
tíma, að þau hafi borðað, séu rétt klædd og útsofin. Auðvitað eru þetta
sjálfsagðir hlutir en það getur vel verið að í einhverjum tilvikum þurfi að
segja það við fólk."
Ingibjörg kveðst hafa rekist á það í bæklingi sem Reykjavíkurborg gefur út
fyrir útlendinga að þar séu svona atriði skilgreind. "En ég hef hvergi séð
þetta sett fram gagnvart íslenskum foreldrum. Ef réttaröryggi foreldra og
barna þeirra er tryggt er hægt að gera strangari kröfur varðandi aga.
Skólanum yrði stoð í því."
Miðstýring hefur aukist
Eyjólfur er eldri en tvævetur í kennslu. Hann hefur kennt sleitulaust í
grunnskólum frá því á öndverðum sjöunda áratugnum, bæði á
höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Eyjólfur var skólastjóri á Hvammstanga
um sex ára skeið. Þar að auki hefur hann alla tíð verið virkur í
félagsstarfi barna og unglinga, þjálfun og héraðsstarfi, svo fátt eitt sé
nefnt. Auk kennararéttinda hefur Eyjólfur próf í atferlisfræði frá Noregi.
Hann segir að fleira starfsfólk sé í skólum í dag en þegar hann hóf
kennslu. Það sé ekki endilega af hinu góða. "Miðstýring í kennslu hefur
aukist mikið á síðustu árum. Ég hélt að þetta myndi breytast þegar
sveitarfélögin tóku við grunnskólanum en það er öðru nær. Miðstýringin
hefur aldrei verið meiri. Skólastjórar eru háðir fjárveitingum frá
sveitarfélaginu og eru fyrir vikið bundnir á klafa. Geta sig hvergi hrært.
Skólinn er alltaf að spara. Ég hélt að návígi væri kostur í stjórnsýslunni
en svo virðist ekki vera, a.m.k. ekki í þessu efni."
Ástandið minnir, að áliti Eyjólfs, helst á franska lénsskipulagið. "Kerfið
er yfirfullt af hertogum og barónum og boðin komast aldrei alla leið í
gegn. Kerfið er m.ö.o. alltof stirt. Þetta á við víðar en í skólakerfinu.
Og á hverjum bitnar þetta? Auðvitað þeim sem minnst mega sín, börnunum. Ég
er ekki hrifinn af þessu."
Kennsla er list
Hann segir að vandinn liggi í því að alltof margir séu í greiningu og
skipulagningu í skólakerfinu. Skriffinnskan sé yfirþyrmandi. "Kennsla er
list og besta fólkið verður að vera á gólfinu. Ekki í einhverjum
greiningadeildum. Það er ekki nóg að hafa her manna í að greina vandann ef
enginn er eftir til að leysa hann. Það er nefnilega mun erfiðara að leysa
vandann en greina hann. Tökum samlíkingu úr læknisfræðinni. Ef ég er með
heilaæxli þá kemur greiningin yfirleitt fljótt. Það er minnsti vandinn. Það
er hins vegar flóknara mál að lækna meinið."
Eyjólfur segir að skólarnir séu mun lakari vinnustaður fyrir kennara í dag
en fyrir fjörutíu árum. "Það gerir flatneskjan. Það eiga allir kennarar að
vera eins. Kennarinn hefur ekki lengur frelsi til að vera hann sjálfur,
iðka sína list. Þetta kemur niður á nemandanum. Hann fær á tilfinninguna að
hann sé staddur í verksmiðju en ekki skóla. Boðin koma að ofan. Kennarinn
er aldrei spurður álits og þaðan af síður nemandinn."
Kynjahlutföllin hafa breyst mikið
Kynjahlutföllin hafa breyst mikið í grunnskólum landsins á undanförnum
áratugum. Þegar Eyjólfur steig sín fyrstu skref í kennslu voru karlmenn í
meirihluta. Nú er yfirgnæfandi meirihluti grunnskólakennara konur. "Þessi
þróun er óheppileg. Börn þurfa að kynnast báðum kynjum jafnt. Nú er svo
komið að börn geta hæglega farið í gegnum grunnskóla án þess að sækja
nokkru sinni í tíma hjá karlmanni, nema kannski í smíðum eða leikfimi. Það
segir sig sjálft að þetta er ekki æskilegt. Ekkert frekar en að allir
kennarar séu karlmenn."
Eyjólfur segir þetta verra fyrir drengi en stúlkur. "Ég veit að mörgum
drengjum líður illa í skólanum enda sýna flestar kannanir að þeir séu að
dragast aftur úr stúlkunum í námi. Þá vantar föðurímyndina sem þeir höfðu
áður. Drengir þurfa öðruvísi aga en stúlkur. Börn eru fljót að finna
veikleika kennarans og nýta sér hann til hins ýtrasta. Fyrir vikið gefast
margir upp á kennslu. Afföll eru óvíða meiri en hjá kennarastéttinni."
|
|
Síðast uppfært ( laugardagur, 19 janúar 2008 )
|
|
|