Sjálfboðaliðar ?

Við óskum eftir sjálf-
boðaliðum í gefandi starf með okkur. Viðkomandi þyrfti að hafa 3-4 klst í mánuði til að aðstoða og veita félagsskap, öldruðum - öryrkjum og einstaklingum sem eru að fást við sorg eða erfiðleika. 
Endilega hafið samband.
globe.jpg
orkuveitumerki






Sjálfstyrkingarhópar Print Senda

Áskirkja - Neðri salur askirkja_200

Höndin býður opna fundi í Áskirkju. Fundirnir hafa verið haldnir reglulega frá stofnun Handarinnar í nóvember 2005. Markmið fundarins er að hjálpa hvort öðru, hlusta og gefa góð ráð. Ekki er nauðsynlegt að tjá sig á fundinum, hver og einn velur sjálfur hversu mikið hann tekur þátt í umræðunum. Trúnaður er skilyrði fyrir þáttöku. Ekkert þáttökugjald. Kaffiveitingar.

 

 Fundartími: Áskirkja - neðri salur klukkann 17:45 - 18:45
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt - Hafðu samband við Helgu Hallbjörnsdóttur, sími: 567-6034 & 695-9104 eða sendu okkur tölvupóst, Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.

 

Sjálfstyrkingarhópar fyrir ungt fólk


Hópur fyrir fólk á aldrinum 18 - 40 ára. Hver fundur er klukkutíma langur og miðar að því að styrkja hvort annað. Trúnaður er skilyrði fyrir þáttöku.

Fundarstjóri: Leifur Leifsson,
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
Aðgangur ókeypis

Dagsetning hvers fundar er auglýstur á heimasíðunni



Heimsóknir

Helga Hallbjörnsdóttir sér um að halda utanum heimsóknir. Þeir sem vilja fá heimsóknir eða vinna gefandi sjálfboðastarf, vinsamlega hafið samband við Helgu í síma 567-6034, eða sendið mail á Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.

 

 


Nánari upplýsingar um starf okkar er hægt að nálgast hjá

  • Helga Hallbjörnsdóttir, sér um heimsóknir og tímapantanir fyrir viðtöl. Sími  567-6034 & 695-9104 virka daga 
  • Eyjólfur Magnússon Scheving í síma 899-0345 eftir kl. 15:00 virka daga
  • Senda okkur tölvupóst: Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.


Fyrir hverja:
Fundirnir eru fyrir alla sem vilja leita sér aðstoðar og vinna í sínum málum - fyrir þá sem eiga eða hafa átt við geðraskanir að etja, svo sem þunglyndi, kvíða og geðhvörf. Einnig er þetta vettvangur fyrir þá sem eru einmanna, eru að kljást við sorg eða missir. Síðast en ekki síst fyrir þá sem vilja láta gott af sér leiða og hjálpa öðrum í vanda. Ekkert er okkur óviðkomið. 

Markmið:
Hjálpa fólki að greina vandann.
Finna eigin styrk og getu.
Benda á leiðir til aðstoðar.
Finna leið til sjálfshjálpar.

Samtökin og fundirnir eru byggð á þekkingu, reynslu, styrk og trú.
Nærvera er það mikilvægasta í starfi okkar.
Hlustun, æðruleysi, fordómaleysi, samúð, hlýja og virðing er grundvöllur okkar starfs. 

Nefndin.

Síðast uppfært ( laugardagur, 13 febrúar 2010 )