|
Gunnar Dal, rithöfundur, útnefndur heiðursfélagi Handarinnar |
|
|
Gunnar Dal rithöfundur hefur starfað mikið í þágu mannúðar og mannræktar. Hann hefur með margvíslegum hætti, meðal annars með stórri bókargjöf, sýnt mikla velvild í garð Handarinnar. Höndin hefur því ákveðið að útnefna Gunnar Dal sem sérstakan heiðursfélaga og þakka honum áhuga á málefnum okkar.
|
|
|
Lífið getur verið svo yndislegt |
|
|
|
pistill eftir Eddu Jóhannsdóttur, blaðamaður og félagi í Höndinni
Sektin
Við sem höfum tilhneigingu til þunglyndis og kvíðaraskana eigum ótalmargt sameiginlegt. Eitt er sektarkennd og tilfinningin að eiga ekkert gott skilið. Hvaðan ætli það komi? Ég hef oft hugleitt hvernig stendur á því að þegar vel gengur verð ég meira hrædd en glöð. Ég man ekki til að hafa verið alin upp við refsandi guð en tilfinningin var og er stundum enn þessi: “Ekki vera glöð eða hamingjusöm, það kemur bara í bakið á þér. ”Sektarkenndin er líka viðvarandi og hluti af þessu. Ég finn til sektar ef ég er glöð og er undrafljót að reka gleðina á brott til að gefa sektinni meira rými.
Grimmdin
Það er ekki eins og ég hafi ekki lesið skrilljón sjálfshjálparbækur. Eða farið á námskeið til að efla sjálfstraustið.
|
|
Síðast uppfært ( laugardagur, 05 desember 2009 )
|
|
Nánar...
|
|
|